Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 20. september 2020 19:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alisson tróð sokk í Carragher
Alisson hélt hreinu þegar Liverpool vann Chelsea í stórleik helgarinnar á Englandi.

Alisson átti mjög góðan leik og varði hann vítaspyrnu þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.

Alisson hefur verið virkilega flottur fyrir Liverpool frá því hann kom til félagsins frá Roma árið 2018. Hann fékk hins vegar gagnrýni fyrir leikinn frá Jamie Carragher, fyrrum leikmanni Liverpool.

„Það er eins og Liverpool hafi verið með Mignolet í markinu í síðustu 12 leikjum," sagði Carragher á Sky Sports.

Simon Mignolet var markvörður Liverpool áður en Alisson kom til félagsins. Það var erfitt fyrir Liverpool að treysta á Mignolet sem gerði mikið af mistökum.

Alisson hafði aðeins haldið þrisvar hreinu í síðustu 13 deildarleikjum fyrir leikinn í dag, en í dag sýndi hann úr hverju hann er gerður.


Athugasemdir