Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 20. september 2020 15:05
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Rúnar Alex utan hóps - PSG vann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leikmannahópi Dijon er liðið tapaði 1-0 gegn Strasbourg í franska boltanum í dag.

Rúnar Alex er vanalega á bekknum en hann er á leið til Arsenal í enska boltanum og því ekki í hópi í dag.

Paris Saint-Germain virðist þá vera búið að ná sér eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Frakklandsmeistararnir margföldu töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum en höfðu betur á útivelli gegn Nice í dag.

Þetta var annar sigur PSG í röð og er liðið með sex stig eftir fjórar umferðir, fjórum stigum eftir toppliði Rennes.

Kylian Mbappe, Angel Di Maria og Marquinhos skoruðu mörk PSG í dag og var eitt mark dæmt af Mbappe vegna rangstöðu.

Nice 0 - 3 PSG
0-1 Kylian Mbappe ('38, víti)
0-2 Angel Di Maria ('45)
0-3 Marquinhos ('66)

Strasbourg 1 - 0 Dijon
1-0 Stefan Mitrovic ('81)
Athugasemdir
banner
banner
banner