Fotbolti.net
20.10.17 - 20:00
Hafliði Breiðfjörð

Eva Núra Abrahamsdóttir í FH (Staðfest)

Eva Núra og Árni Rúnar Þorvaldsson formaður meistaraflokksráðs kvenna.

Eva Núra og Árni Rúnar Þorvaldsson formaður meistaraflokksráðs kvenna.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
Eva Núra Abrahamsdóttir hefur gengið til liðs við FH og mun spila með liðinu á næsta keppnistímabili.
Eva hefur undanfarin ár leikið með liði Fylkis.

Hún hefur spilað 109 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim fimm mörk.

Eva á að baki fjölda leikja í yngri landsliðum Íslands og á að auki einn leik með A landsliðinu árið 2016.

Orri Þórðarson, þjálfari meistaraflokks kvenna, er ánægður með liðsstyrkinn. „Eva Núra er klókur leikmaður með gott auga fyrir spili og á eftir að styrkja liðið okkar,\" sagði hann á vef FH.

Evu Núru líst vel á nýja liðið. „Mér líst mjög vel á vera komin til FH. Liðið hefur verið á uppleið undanfarin ár og það er greinilega metnaður í félaginu.“\"

Hún er annar leikmaðurinn sem FH fær til liðs við sig á tveimur dögum því í gær kom Marjani Hing Glover frá Haukum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.