20.11.18 - 10:34
Magnús Már Einarsson
Atli Gunnar í Fjölni (Staðfest)

Atli í leik með Fram síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli í leik með Fram síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir hefur fengið markvörðinn Atla Gunnar Guðmundsson til liðs við sig frá Fram.
Atli Gunnar er uppalinn hjá Hugin á Seyðisfirði en hann hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Fram.
Hinn 25 ára gamli Atli spilaði alla 22 leiki Fram í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.
Atli Gunnar er uppalinn hjá Hugin á Seyðisfirði en hann hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Fram.
Hinn 25 ára gamli Atli spilaði alla 22 leiki Fram í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.
Samtals hefur Atli spilað 47 leiki í Inkasso-deildinni á ferli sínum og hann verður áfram í deildinni með Fjölni næsta sumar.
Markmaðurinn Atli Gunnar Guðmundsson hefur skrifað undir samning við Fjölni!
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) November 20, 2018
Atli, sem er 25 ára gamall Seyðfirðingur, kemur frá Fram og er með 134 leiki á bakinu. Við bjóðum @atligunnar velkominn í Grafarvoginn og væntum mikils af honum í framtíðinni.#FélagiðOkkar pic.twitter.com/XTYt5DvxFG
