Fotbolti.net
19.11.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeild kvenna: Arsenal tapaði á heimavelli

Meistaradeild kvenna: Arsenal tapaði á heimavelli
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Þremur síðustu leikjum kvöldsins var að ljúka í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna og tapaði Arsenal á heimavelli gegn Lyon.
Meistaradeild kvenna: Glódís aftur í byrjunarliði - Dramatískt tap í Frakklandi
TENGT EFNI

Meistaradeild kvenna: Glódís aftur í byrjunarliði - Dramatískt tap í Frakklandi

Frönsku gestirnir voru talsvert sterkari aðilinn og óheppnar að vinna ekki stærra heldur en með tveggja marka mun. Arsenal er með 8 stig eftir 5 umferðir í Meistaradeildinni og heimsækir Íslendingalið Inter í áhugaverðum slag í lokaumferðinni.

Lyon deilir toppsætinu með Barcelona eftir sigurinn, með 13 stig úr 5 umferðum. Barca skoraði sex mörk í stórsigri gegn svissneska liðinu Servette í kvöld. Þar var Cláudia Pina atkvæðamest með þrennu í liði heimakvenna.

Að lokum hafði Roma betur eftir skemmtilegan slag gegn Benfica í Lissabon. Ítalíumeistararnir höfðu betur gegn Portúgalmeisturunum eftir fimm marka slag.

Rómverjar náðu forystunni í tvígang en í bæði skiptin jafnaði Benfica. Heimakonum tókst þó ekki að bjarga stigi eftir að hin finnska Sofia Jahnukainen skoraði í uppbótartíma.

Arsenal 0 - 2 Lyon
0-1 Jule Brand ('24)
0-2 Daelle Melchie Dumornay ('57)

Barcelona 6 - 0 Servette
1-0 Aitana Bonmati ('19)
2-0 Claudia Pina ('26)
3-0 Esmee Brugts ('32)
4-0 Caroline Graham Hansen ('62, víti)
5-0 Claudia Pina ('77)
6-0 Claudia Pina ('88)

Benfica 2 - 3 Roma
0-1 Kayleigh van Dooren ('17)
1-1 Caroline-Sophie Moller ('40)
1-2 Kayleigh van Dooren ('54)
2-2 Flourish Sabastine ('66)
2-3 Sofia Jahnukainen ('93)
Meistaradeild kvenna: Arsenal tapaði á heimavelli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.