20.12.16 - 16:36
Magnús Már Einarsson
Joey Barton í Burnley (Staðfest)

Mættur aftur til Burnley.

Mynd: Getty Images

Mættur aftur til Burnley.

Mynd: Getty Images
Joey Barton er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina en hann er nýr liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá Burnley.
Hinn 34 ára gamli Barton hjálpaði Burnley um í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili áður en hann ákvað að semja við Rangers í sumar.
Dvöl hans í Skotlandi var þó ekki löng en Barton lenti upp á kant við menn hjá Rangers og yfirgaf félagið í nóvember eftir að hafa verið í nokkrar vikur í agabanni.
Barton hefur æft með Burnley að undanförnu og hann hefur nú gert samning við félagið út tímabilið.
Barton ætti að fá leikheimild með Burnley um leið og félagaskiptaglugginn opnar aftur í janúar.