Fotbolti.net
20.12.16 - 12:36
Magnús Már Einarsson

Rafn Andri aftur í Þrótt (Staðfest)

Rafn Andri Haraldsson.

Rafn Andri Haraldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Rafn Andri Haraldsson hefur undirritað tveggja ára samning við Þrótt, en hann spilaði síðast með liðinu sumarið 2015.

Rafn Andri hefur undanfarin ár verið í framhaldsnámi í verkfræði við University of Alabama in Huntsville (UAH) og spilað með skólaliðinu þar. Hann er nú fluttur heim til Íslands og mun því nýtast Þrótti allt keppnistímabilið.
Rafn Andri er 27 ára gamall og á að baki tíu ára feril í meistaraflokki þar sem hann hefur spilað 143 leiki og skorað 14 mörk. Hann er uppalinn Þróttari og hefur spilað með félaginu alla tíð, að undanskildum tveimur tímabilum með Breiðabliki.

„Endurkoma Rabba í Laugardalinn er punkturinn yfir i-ið á mjög vel heppnuðu félagaskiptatímabili fyrir Þrótt í þessari törn núna fyrir jólin. Rabbi er með djúpa innsýn í fótboltann og einstakan leikskilning. Hann er skapandi og tæknilegur leikmaður, en skilar þó alltaf ríku varnarhlutverki og getur leyst flestar stöður aftarlega á vellinum. Ég er himinlifandi með þessa viðbót. Rabbi smellpassar í hópinn,“ segir Gregg Oliver Ryder, þjálfari Þróttar á heimasíðu félagsins.

„Rafn Andri á að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands, þannig að það segir sitthvað um gæðin sem gaurinn kemur með inn í hópinn. Það er alltaf frábært þegar hjartað í Reykjavík nær að tryggja sér þjónustu uppalinna og þessi heimamaður er í toppklassa. Rabbi er reynslubolti og refur á velli þótt hann sé ungur að árum. Virkilega vel þegið að fá þennan leikna verkfræðing í miðjuspilið,“ segir Ótthar Sólberg Edvardsson, framkvæmdastjóri Þróttar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.