20.12.18 - 19:58
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Sandro búinn að skrifa undir nýjan samning (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski bakvörðurinn Alex Sandro er búinn að skrifa undir nýjan samning við Ítalíumeistara Juventus.
Alex Sandro er talinn meðal bestu vinstri bakvarða heims um þessar mundir og hefur verið eftirsóttur af Manchester United undanfarin misseri. Rauðu djöflarnir voru sagðir vera reiðubúnir til að greiða yfir 50 milljónir punda fyrir varnarmanninn.
Alex Sandro verður 28 ára í janúar og hefur hann skorað 9 mörk í 89 deildarleikjum á þremur og hálfu ári hjá Juve. Samningurinn gildir til sumarsins 2023.
„Þetta er stórkostlegur dagur fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég er ótrúlega ánægður með þennan samning og hlakka til komandi tíma með Juventus," sagði Alex Sandro.