Fotbolti.net
20.12.18 - 18:47
Ívan Guðjón Baldursson

Elton Barros til Keflavíkur (Staðfest)

Elton Barros til Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Keflavíkur

Keflavík hefur verið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Inkasso-deildinni og voru sex leikmenn að skrifa undir samninga við félagið. Þrír framlengdu og þrír nýir eru gengnir til liðs við félagið.
Sóknarmaðurinn Elton Barros er genginn til liðs við félagið eftir að hafa gert góða hluti með Selfossi og Haukum undanfarin ár. Barros er 27 ára gamall og hefur gert 30 mörk í 71 leik hér á landi, en hann hefur alltaf leikið í Inkasso-deildinni.

Barros er stór og öflugur framherji frá Grænhöfðaeyjum og á hann að fylla í skarð Jeppe Hansen og Lasse Riise sem voru látnir fara frá Keflavík eftir sumarið.

„Elton hefur sýnt það þau ár sem hann hefur spilað á Íslandi að þar er á ferð gríðarlega öflugur leikmaður sem ætti að nýtast Keflavíkurliðinu vel á næsta ári," segir á Facebook síðu knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Þá er Kristófer Páll Viðarsson einnig genginn í raðir félagsins eftir að hafa fallið úr Inkasso-deildinni með Selfossi síðasta sumar. Kristófer er fæddur 1997 en er gríðarlega reyndur og á 105 leiki að baki í íslenska boltanum, 55 þeirra í Inkasso.

„Við erum gríðarlega ánægðir með að Kristófer Páll sé gengin til liðs við okkur. Hann getur leyst nokkrar stöður á vellinum sem hentar okkur vel og kemur með mikilvæga reynslu í ungt og efnilegt lið Keflavíkur,“ segir Jónas Guðni Sævarsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Hinn 16 ára gamli Jóhann Þór Arnarsson gerði tveggja ára samning við Keflavík en hann er efnilegur sóknarmaður sem kemur frá FH. Jóhann var markahæsti leikmaður A-riðils í 3. flokki á þessu ári með 19 mörk í 13 leikjum. Hann á fimm U17 landsleiki að baki og skoraði tvennu í fyrsta æfingaleik sínum með Keflavík á dögunum.
Elton Barros til Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Keflavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.