20.12.18 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Frans og Sindri áfram í Keflavík (Staðfest)

Frans verður áfram í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frans verður áfram í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var mikilvægur dagur fyrir Keflavík þar sem Frans Elvarsson og Sindri Kristinn Ólafsson skrifuðu undir nýja samninga við félagið.
Frans er öflugur miðjumaður sem var eftirsóttur af nokkrum Pepsi-deildarliðum en hefur ákveðið að halda tryggð við Keflavík, þar sem hann hefur spilað 145 leiki síðustu sex ár.
„Þessi 28 ára gamli leikmaður mun verða ungu liði Keflavíkur mikilvægur á næsta ári en hann hefur verið einn af burðarásum liðsins síðustu ár og því mikið gleðiefni fyrr Keflavík að hann hafi ákveðið að taka slaginn með liðinu áfram í næstu efstu deild á næsta tímabili," segir á Facebook síðu knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Sindri Kristinn er 21 árs markvörður sem hefur verið aðalmarkvörður Keflavíkur síðustu tvö ár og þótti einn af betri mönnum liðsins í sumar. Sindri á 17 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þar af 9 fyrir U21.
„Við erum gríðarlega ánægðir með að Sindri hafi ákveðið að taka slaginn með okkur áfram. Við viljum byggja liðið upp á heimamönnum og þessum strákum sem hafa verið með okkur í gegnum allt starfið í bland við efnilega unga leikmenn af öllu landinu sem eru klárir í að takast á við þetta verkefni með okkur," sagði SIgurður Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Þá var Hreggviður Hermannsson að gera þriggja ára samning við félagið. Hann er efnilegur sóknarmiðjumaður sem er fæddur árið 2000 og er uppalinn hjá Keflavík.