Fotbolti.net
20.12.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Ísold í Hauka (Staðfest)

Ísold í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Kvennaboltinn
Ísold Kristín Rúnarsdóttir hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild Hauka en hún kemur til félagsins frá Fylki.
Ísold á að baki 36 leiki í meistaraflokki með Fylki, KH og Val en hún er uppalin hjá síðastnefnda liðinu.

Hún á einnig að baki 16 leiki með U17 landsliði Íslands og einn leik með U19.

Jakob Leó Bjarnason, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Haukum, segir að Ísold sé öflugur miðjumaður með góða tækni og auga fyrir spili.

„Ísold er mjög skapandi leikmaður sem fer vel með boltann og er öflug varnarlega sem og sóknarlega. Ásamt því að vera vinnusöm að þá er hún fjölhæf og drífandi," segir Jakob.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.