20.12.18 - 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Jeison Murillo til Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia er búið að staðfesta félagaskipti Jeison Murillo til Barcelona þar sem hann mun leika á láni út tímabilið.
Lánssamningnum fylgir kaupákvæði sem hljóðar upp á 25 milljónir evra, en Börsungar eru ekki skyldugir til að kaupa leikmanninn.
Murillo er 26 ára gamall miðvörður frá Kólumbíu sem á 27 A-landsleiki að baki og lék stórt hlutverk í liði Inter frá 2015 til 2017.
Valencia fékk Murillo lánaðan í fyrra og honum fylgdi kaupskylda. Hann var því keyptur í sumar en hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum á tímabilinu.