Fotbolti.net
20.12.19 - 14:06
Elvar Geir Magnússon

Arteta nýr stjóri Arsenal (Staðfest)

Arteta er nýr stjóri Arsenal.

Arteta er nýr stjóri Arsenal.

Canon

Mynd: Arsenal

Mikel Arteta hefur verið ráðinn nýr stjóri Arsenal en samkvæmt frétt á heimasíðu félagsins þá tekur hann til starfa á sunnudag.

Freddie Ljungberg stýrir sínum síðasta leik sem bráðabirgðastjóri á morgun þegar Arsenal mætir Everton.

Arteta var fyrirliði Arsenal á sínum tíma en hann gerir þriggja og hálfs árs samning. Hann lætur af starfi sem aðstoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City til að taka við stjórnartaumunum hjá Arsenal.

Raul Sallehi, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal, hefur þetta að segja eftir ráðninguna.

„Við höfum rætt við hágæða kandídata en Mikel stóð upp úr að mati okkar allra. Hann er fullkominn einstaklingur fyrir okkur. Hann skilur félagið og fyrir hvað það stendur hjá stuðningsmönnum okkar um allan heim. Við höfum fulla trú á því að hann nái því besta út úr leikmönnum okkar og komi liðinu á beinu brautina."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.