20.12.19 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ásta Vigdís í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við Breiðablik og mun hún leika að láni hjá Keflavík út tímabilið.
Ásta Vigdís er fædd 1996 og á 19 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hún kom inn í byrjunarlið Breiðabliks undir lok síðasta tímabils og átti stórleik gegn Sparta Prag í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Ásta er þó ekki inn í myndinni hjá Blikum næsta sumar og hefur hún verið lánuð til Keflavíkur út sumarið. Hún á að hjálpa Keflvíkingum að komast aftur upp í efstu deild.
„Það eru frábærar fréttir fyrir Breiðablik að Ásta sé búin að skrifa undir nýjan samning við félagið og hlökkum við til að fylgjast með henni hjá Keflavík á komandi tímabili," segir í Facebook færslu frá Knattspyrnudeild Breiðabliks.