20.12.19 - 14:47
Elvar Geir Magnússon
Gonzalo Zamorano í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Gonzalo snýr aftur til Ólafsvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gonzalo snýr aftur til Ólafsvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík hefur endurheimt sóknarleikmanninn Gonzalo Zamorano.
„Jólin koma heldur betur snemma hjá stuðningsmönnum Víkings Ó. Því Spánverjinn Gonzalo Zamorano Leon er kominn aftur heim í Víking Ó. Gonzalo gerir tveggja ára samning við félagið," segir í tilkynningu frá Ólasvík.
„Gonzalo þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum félagsins en hann lék með liðinu árið 2018. Þá skoraði hann 11 mörk í deild og bikar og stóð sig gríðalega vel fyrir félagið."
„Gonzalo, sem verður 25 ára gamall næsta sumar, mun spila með liði úr heimabæ sínum á Spáni fram í mars en snýr þá til Ólafsvíkur, klár í slaginn fyrir knattspyrnusumarið 2020. Stjórn Víkings Ó. Býður Gonza velkominn heim í Ólafsvík."
Gonzalo Zamorano kom fyrst hingað til lands 2017 en Huginn á Seyðisfirði fékk hann þá til sín. Á liðnu sumri lék hann í Pepsi Max-deildinni með ÍA.
„Ég lærði mikið á þessu ári sem ég mun nýta mér í framtíðinni og er ég viss um að 2020 verður mitt ár," sagði Gonzalo við Fótbolta.net í síðasta mánuði.
Jón Páll Pálmason þjálfar Víking Ólafsvík í Inkasso-deildinni á næsta ári.