Fotbolti.net
20.12.19 - 13:47
Elvar Geir Magnússon

Haaland eldri með skemmtilegt skot - Giskaðu aftur!

Haaland eldri með skemmtilegt skot - Giskaðu aftur!
Canon

Mynd: Getty Images

Fjölmiðlafár skapaðist í morgun í kjölfar þess að norskir fjölmiðlar greindu frá því að Erling Braut Haaland væri ásamt föður sínum á leið með flugi til Manchester.

Talið var að hann væri á leið til viðræðna við Manchester United en nú hefur komið í ljós að sóknarmaðurinn ungi <a href="https://fotbolti.net/news/20-12-2019/haaland-var-i-flugi-til-kaupmannahafnar" target="_blank">flaug í rauninni</a> til Kaupmannahafnar en hann er kominn í jólafrí.

Faðir hans er Alf-Inge Haaland, fyrrum leikmaður Manchester City og Leeds.

Alf-Inge sló á létta strengi á Twitter eftir fjölmiðlafárið og skaut á norska fréttamanninn sem greindi fyrst frá því að þeir feðgar væru á leið til Manchester.

Hann birti mynd þar sem sjá má Erling Braut Haaland vera að skoða flugáætlun á flugvellinum og við myndina var blaðamaðurinn beðinn um að giska aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.