Fotbolti.net
20.12.19 - 13:23
Elvar Geir Magnússon

Haaland var í flugi til Kaupmannahafnar

Erling Braut Haaland.

Erling Braut Haaland.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú hefur komið í ljós að norskir fjölmiðlar höfðu kolrangt fyrir sér þegar þeir sögðu Erling Braut Haaland vera á leið í flugi til Manchester.

Þessi nítján ára sóknarmaður RB Salzburg var eftir allt saman í flugvél sem flaug til Kaupmannahafnar.

Þessi eftirsóknarverði leikmaður er í jólafríi og flaug frá Stafangri til Kaupmannahafnar þaðan sem ferðinni er væntanlega heitið áfram til heitari landa.
Mikið fjölmiðlafár skapaðist þegar norskir fjölmiðlar sögðu Haaland líklega vera á leið til Manchester til að funda með Ole Gunnar Solskjær, stjóra United.

En Haaland var ekki um borð í vélinni sem flaug til Manchester.

Mörg stórlið hafa áhuga á Haaland en þar á meðal er United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.