Fotbolti.net
20.12.19 - 11:56
Elvar Geir Magnússon

Klopp: Okkur var sagt að halda okkur heima

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að viðhorfið sem brasilíska liðið Flamengo hafi fengið fyrir HM félagsliða sé gjörólíkt því sem hans menn hafa fengið.

Liverpool og Flamengo mætast í úrslitaleik keppninnar klukkan 17:30 á morgun. Keppnin fer fram í Katar.

Gríðarlega spenna og stemning er fyrir keppninni í Brasilíu en Englendingar líta hinsvegar ekki stórt á hana.
„Staða okkar er allt önnur en hjá Flamengo. Þeir koma með skýrt markmið um að vinna keppnina og snúa aftur sem hetjur. Okkur var sagt að halda okkur heima og spila í deildabikarnum," segir Klopp.

„Hér erum við og mitt lið vill vinna keppnina. Evrópubúar líta öðrum augum á keppnina en aðrir heimshlutar. Stuðningsmenn Liverpool vilja sjá okkur vinna en flestum öðrum stuðningsmönnum í Evrópu er alveg sama."

„Flamengo er öflugt lið og vel þjálfað af Jorge Jesus. Þeir eru með nokkra leikstíla og eru með gæði á miðsvæðinu. Þeir eru hættulegir á vængjunum og geta skotið af löngu færi," segir Klopp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.