20.12.19 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool færir þrjá úrvalsdeildarleiki til að skapa frí

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það er ansi hörð leikjatörn framundan hjá Liverpool sem er komið í úrslitaleik HM félagsliða í Katar.
Það eru gríðarlega margir leikir á dagskrá næstu vikurnar og hefur félagið ákveðið að skapa sér tveggja vikna frí í byrjun febrúar til að leyfa leikmönnum að hlaða batteríin.
Til að skapa sér frí frá keppnisleikjum frá 2.-14. febrúar þurfti að færa þrjá leiki. Útileikur gegn Norwich verður spilaður 15. febrúar í stað 8. febrúar.
Heimaleikur gegn West Ham fer þá fram 24. febrúar í stað 26. og útileikurinn gegn Watford var færður um tíma 29. febrúar. Hann verður nú spilaður klukkan 17:30 í stað 15:00.