Ákveðinn í að fá Haaland til Barcelona - City veitir Liverpool keppni um Guehi - Everton mun ekki hlusta á tilboð í Branthwaite
   þri 21. janúar 2020 19:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Chelsea og Arsenal: Fáar breytingar
Það er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:15 þegar Chelsea og Arsenal eigast við á Stamford Bridge.

Bæði lið töpuðu stigum um síðustu helgi, Chelsea tapaði 1-0 gegn Newcastle og Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Sheffield United.

Chelsea er með 39 stig í fjórða sæti og Arsenal í tíunda sæti með aðeins 29 stig.

Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, er í leikbanni og er Gabriel Martinelli, 18 ára gamall Brasilíumaður, áfram með sæti hans í liði Arsenal. Martinelli skoraði í jafnteflinu gegn Sheffield United.

Mikel Arteta gerir aðeins eina breytingu frá jafnteflinu gegn Sheffield United. Hector Bellerin kemur inn í hægri bakvarðarstöðuna fyrir Ainsley Maitland-Niles.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Newcastle. Emerson og Mateo Kovacic koma inn í liðið fyrir Reece James og Mason Mount.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Chelsea: Arrizabalaga, Azpilicueta, Rudiger, Christensen, Emerson, Kante, Jorginho, Kovacic, Hudson-Odoi, Abraham, Willian.
(Varamenn: Caballero, Alonso, Barkley, Pedro, Zouma, Mount, Batshuayi)

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Bellerin, Mustafi, Luiz, Saka, Torreira, Xhaka, Pepe, Ozil, Martinelli, Lacazette.
(Varamenn: Martinez, Ceballos, Maitland-Niles, Holding, Willock, Guendouzi, Nketiah)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 4 4 0 0 9 4 +5 12
2 Arsenal 4 3 0 1 9 1 +8 9
3 Tottenham 4 3 0 1 8 1 +7 9
4 Bournemouth 4 3 0 1 6 5 +1 9
5 Chelsea 4 2 2 0 9 3 +6 8
6 Everton 4 2 1 1 5 3 +2 7
7 Sunderland 4 2 1 1 5 3 +2 7
8 Man City 4 2 0 2 8 4 +4 6
9 Crystal Palace 4 1 3 0 4 1 +3 6
10 Newcastle 4 1 2 1 3 3 0 5
11 Fulham 4 1 2 1 3 4 -1 5
12 Brentford 4 1 1 2 5 7 -2 4
13 Brighton 4 1 1 2 4 6 -2 4
14 Man Utd 4 1 1 2 4 7 -3 4
15 Nott. Forest 4 1 1 2 4 8 -4 4
16 Leeds 4 1 1 2 1 6 -5 4
17 Burnley 4 1 0 3 4 7 -3 3
18 West Ham 4 1 0 3 4 11 -7 3
19 Aston Villa 4 0 2 2 0 4 -4 2
20 Wolves 4 0 0 4 2 9 -7 0
Athugasemdir
banner