ÍA hefur gengið frá samningi við Jaclyn Poucel. Samingurinn gildir út komandi keppnistímabil.
Hún snýr aftur eftir um fjögurra ára fjarveru frá íslenska boltanum. Hún lék með ÍA í Pepsi-deildinni sumarið 2016.
Jaclyn er 26 ára varnarmaður frá Bandaríkjunum sem var fyrirliði háskólaliðs Pittsburgh og hefur leikið fyrir Boston Breakers, NiceFutis í Finnlandi og Celtic í Skotlandi.
„Jaclyn er mikill liðstyrkur fyrir ungt lið Skagamanna," segir í tilkynningu frá ÍA.
Jaclyn er annar leikmaðurinn sem kvennalið ÍA bætir við sig eftir að hafa fengið Janet Egyir, landsliðskonu Gana, frá Aftureldingu.
ÍA hafnaði í áttunda sæti Inkasso-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir