Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. janúar 2020 11:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lindelöf sendur heim af æfingu - Byrjar Bailly á morgun?
Mynd: Getty Images
Ljósmyndarar sáu Victor Lindelöf yfirgefa æfingasvæði Manchester United snemma í morgun.

Hann er sagður hafa mætt á Carrington æfingasvæðið skömmu fyrir tíu í morgun en hann yfirgaf svo svæðið korteri seinna.

Manchester United mætir Burnley í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Samkvæmt heimildum ManchesterEveningNews er Lindelöf veikur og því einhverjar líkur á því að hann verði ekki klár annað kvöld.

Eric Bailly sneri aftur í hóp Manchester United gegn Liverpool um helgina. Talið er að annað hvort Bailly eða Luke Shaw byrji við hlið Harry Maguire.
Athugasemdir
banner
banner