Fotbolti.net
21.01.20 - 15:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sjáðu fyrstu mörk Berglindar fyrir AC Milan

Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Berglind Björg Þorvaldsdóttir segir að hún muni skora <a href="https://fotbolti.net/news/18-01-2020/berglind-bjorg-eg-mun-skora-meira-en-zlatan" target="_blank">meira fyrir AC Milan en Zlatan Ibrahimovic</a> og hún fer vel af stað í Mílanó.
Hún skoraði tvennu í 3-2 endurkomusigri Milan gegn Roma í gær. Hún stimplaði sig hressilega inn í lið Milan.

Roma komst í 2-0 í leiknum en Berglind minnkaði muninn á 70. mínútu og skoraði síðan sigurmarkið með skalla á 90. mínútu.

Berglind Björg kom til AC Milan frá Breiðabliki fyrir helgi en hún mun leika í Serie A fram á vor áður en hún snýr aftur í Kópavoginn. Berglind fékk treyju númer 10 hjá AC Milan

AC Milan er áfram í fjórða sæti eftir sigurinn en liðið er nú einungis stigi á eftir Roma sem er í þriðja sæti.

Hér að neðan má sjá það helsta úr sigri Milan og þar á meðal mörg Berglindar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.