Fotbolti.net
21.01.21 - 22:52
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Liverpool og Burnley: Mee maður leiksins

Einkunnir Liverpool og Burnley: Mee maður leiksins
Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Liverpool töpuðu afar óvænt á heimavelli gegn Burnley fyrr í kvöld.
Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir og kemur einkunnagjöfin nokkuð á óvart, þar sem Ben Mee var valinn besti maður vallarins.

Mee átti mjög góðan leik en gerðist sekur um stór mistök undir lok fyrri hálfleiks sem hleyptu Divock Origi einum í gegn. Origi klúðraði þó dauðafærinu með að skjóta í slána.

Mee fær 8 í einkunn og er sá eini á vellinum að undanskildum Nick Pope til að fá svo góða einkunn. Það kemur á óvart að enginn leikmaður Liverpool fær undir 6 í einkunn fyrir sinn þátt.

Jóhann Berg Guðmundsson fékk að spila síðasta hálftímann og fær 6 fyrir sinn þátt.

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (7), Matip (6), Fabinho (6), Robertson (7), Oxlade-Chamberlain (6), Thiago (7), Wijnaldum (7), Shaqiri (6), Origi (7), Mane (7).
Varamenn: Salah (6), Firmino (6)

Burnley: Pope (8), Lowton (7), Tarkowski (7), Mee (8), Taylor (7), Brady (6), Westwood (6), Brownhill (6), McNeil (7), Barnes (7), Wood (6).
Varamenn: Pieters (6), Guðmundsson (6).

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.