Fotbolti.net
21.02.20 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjubikarinn: Höskuldur með tvennu í Mosfellsbæ

Lengjubikarinn: Höskuldur með tvennu í Mosfellsbæ
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding 1 - 3 Breiðablik
0-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('4)
0-2 Viktor Karl Einarsson ('7)
0-3 Höskuldur Gunnlaugsson ('18)
1-3 Georg Bjarnason ('83)
Breiðablik lagði Aftureldingu að velli í annarri umferð Lengjubikarsins í kvöld.

Blikar gerðu út um leikinn á fyrstu átján mínútunum þar sem Höskuldur Gunnlaugsson skoraði í tvígang, fyrra markið með skalla.

Viktor Karl Einarsson skoraði einnig af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf.

Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós fyrr en á lokakaflanum þegar Georg BJarnason minnkaði muninn fyrir heimamenn. Afturelding komst ekki nær og lokatölur 1-3.

Blikar eru með sex stig eftir sigur gegn Leikni R. í fyrstu umferð. Afturelding er með eitt stig, eftir jafntefli við Leikni F.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.