Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. mars 2019 21:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Sjáðu hræðileg mistök Courtois
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú er í gangi leikur Belgíu og Rússlands. Þegar þetta er skrifað leiða heimamenn í Belgíu með tveimur mörkum gegn einu.

Youri Tielemans og Eden Hazard hafa skorað mörk Belga en Denis Cheryshev skoraði mark Rússa.

Thibaut Courtois vill líklega gleyma þessu marki hjá Cheryshev sem fyrst þar sem að hann gerði hræðileg mistök í aðdraganda að markinu. Jan Vertonghen átti sendingu til baka á Courtois sem ætlaði að vera aðeins of svalur á boltann.

Artem Dzyuba, framherji Rússa, setti pressu á Courtois sem náði ekki að hreinsa boltann frá marki. Denis Cheryshev nýtti sér þessi mistök með því að skora í autt markið.

Sjáðu atvikið með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner