Írland fær Frakkland í heimsókn á mánudaginn í undankeppni EM en Andrew Omobamidele varnarmaður Norwich og íska landsliðsins segist spenntur að mæta Kylian Mbappe.
Omobamidele er sannfærður um að geta haldið vel í Mbappe.
„Hann er snöggur en ég vil meina að ég sé snöggur líka. Ég væri til í að mæta honum í spretthlaupi til að sjá hversu snöggur ég er," sagði Omobamidele.
„Hjá Norwich mælum við í metrum á sekúndu og ég hef hlaupið 10.4m á sekúndu. Ég veit ekki hver tíminn hjá Mbappe er en við sjáum til."
Samkvæmt útreikningum í frönsku deildinni hefur Mbappe verið mældur á 36 kmh.
Athugasemdir