Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 20:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hollendingur í byrjunarliði Vals í sigri gegn ÍR
Tryggvi Hrafn skoraði tvö mörk í dag.
Tryggvi Hrafn skoraði tvö mörk í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Myles Veldman
Myles Veldman
Mynd: Twitter
Valur 5 - 2 ÍR
Mörk Vals: Tryggvi Hrafn Haraldsson (2), Lúkas Logi Heimisson, Dagur Orri Garðarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mörk ÍR: Emil Nói Sigurhjartarson og Guðjón Máni Magnússon.

Valur tók á móti ÍR í æfingaleik í dag og urðu lokatölur 5-2 Hlíðarendapiltum í vil. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvennu í dag en hann gerði sigurmarkið í 1-0 sigri á Leikni fyrir viku síðan.

Dagur Orri Garðarsson er kominn á blað hjá Val og þeir Lúkas Logi og Hólmar Örn komu boltanum einnig í netið. Frederik Schram var mættur í markið hjá Val eftir meiðsli. Það voru þeir Guðjón Máni og Emil Nói skoruðu mörk ÍR sem verður í Lengjudeildinni í sumar.

Það vakti athygli að hollenskur vinstri bakvörður spilaði með Val í dag. Sá heitir Myles Veldman og lagði upp eitt mark í dag. Myles er 22 ára, fæddur 2003 og er skráður leikmaður litháenska félagsins Nevezis á Transfermarkt.

Hann er uppalinn hjá ADO Den Bosch og hefur einnig verið á mála hjá unglingaliðum Willem II, Cambuur og Alphense en hefur ekki spilaði ekki meistaraflokksbolta fyrr en í Litháen þar sem hann hefur skorað tvö mörk í fjórtán leikjum í næstefstu deild. Hann er einnig með súrínamskan ríkisborgararétt.

Byrjunarlið Vals: Frederik; Jakob Franz, Hólmar Örn, Hörður Ingi, Veldman; Birkir, Ólafur Flóki, Adam, Skoglund; Tryggvi og Dagur Orri.

Íslandsmótið hjá Val, sem er í Bestu deildinni, hefst eftir þrjár vikur og Lengjudeildin hefst svo í lok apríl. Eftir átta daga mætir ÍR liði Aftureldingar í 2. umferð í forkeppninni í Mjólkurbikarnum og viku síðar eru 32-liða úrslitin spiluð og þar mæta Valsarar til leiks.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner