Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 23:15
Brynjar Ingi Erluson
„Það var bara erfitt að horfa á þetta“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrrum Chelsea-mennirnir Gary Cahill og Steve Sidwell voru í losti yfir því sem þeir sáu frá liðinu í 3-0 tapinu gegn Brighton í kvöld.

Chelsea er að ganga í gegnum erfiða tíma og litlar líkur á því að liðið verði í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Liðið hefur lengi vel verið í baráttu um Meistaradeildarsæti, en fimm töp í síðustu fimm leikjum hafa nánast gert út um þann möguleika.

Cahill, sem vann átta titla með Chelsea frá 2012 til 2019, gat ekki tekið neitt jákvætt úr leiknum í kvöld.

„Þeir voru yfirspilaðir í leik sem þeir þurftu að vinna. Það er ekki hægt að taka neitt jákvætt úr þessu.“

„Ég finn aðeins til með Liam því mér finnst leikmennirnir hafa brugðist honum, en það er óþægileg tölfræði þarna úti um Chelsea og útlit fyrir að erfiðir tímar séu framundan.“

„Núna er undanúrslitaleikurinn í bikarnum á sunnudag gríðarlega mikilvægur fyrir félagið, en þeir líta út fyrir að vera brothættir og lágt sjálfstraust. Það var bara erfitt að horfa á þetta.“

„Þeir sættu sig við örlög sín á síðustu tuttugu mínútunum, voru á eftir í alla í bolta og voru bara langt undir pari,“
sagði Cahill.

Sidwell, sem spilaði með Chelsea í eitt tímabil frá 2007 til 2008, sagði frammistöðuna óásættanlega.

„Stuðningsmenn Chelsea munu ekki sætta sig við þessa frammistöðu, bara ekki fræðilegur möguleiki. Þegar bakið er komið upp við vegg þarftu að koma þér úr þeirri aðstöðu með því að leggja þig fram og taka þessa erfiðu metra.“

„Það er hægt að tala um leikgreiningu og gögn þangað til þú blánar í andlitinu, en þú þarft samt að fara út á völl og skila inn framlagi. Það er eina leiðin til að komast út úr þessu.“

„Já, það eru meiðsli og það vantaði nokkra mikilvæga leikmenn í kvöld, en þú verður bara að taka því og leikmennirnir sem koma í staðinn verða að stíga upp. Enginn af þeim gerði það í kvöld.“

„Þetta virkaði allt of auðvelt fyrir Brighton og bara alls ekki nógu gott hjá Chelsea,“
sagði SIdwell.
Slapp
banner
banner
banner