Fotbolti.net
21.05.17 - 19:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spánn: Real Madrid meistari (Staðfest)

Barcelona lenti 2-0 undir, unnu að lokum 4-2

Real Madrid tryggði sér titilinn í kvöld.

Real Madrid tryggði sér titilinn í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid varð í kvöld spænskur meistari eftir 2-0 sigur á Malaga á útivelli. Þetta er fyrsti Spánarmeistarartitill Madrídinga í fimm ár.

Real nægði stig gegn Malaga í kvöld, en þeir ætluðu sér að vinna. Þeir komust yfir mjög snemma þegar Cristiano Ronaldo skoraði enn eitt mark sitt á tímabilinu. Þarna var ekkert aftur snúið.

Karim Benzema bætti við öðru marki þegar tíu mínútur voru búnar í seinni hálfleiknum og þar við sat, lokatölur 2-0 fyrir Real.

Barcelona þurfti að vinna sinn leik gegn Eibar og treysta á Malaga. Barcelona var 2-0 undir gegn Eibar þegar 61 mínúta var búin.

Þeir náðu hins vegar ótrúlegum viðsnúningi og unnu að lokum 4-2 sigur. Lionel Messi með tvo og Luis Suarez með eitt. Hitt markið var sjálfsmark hjá leikmanni Eibar.

Real Madrid er þó meistari og Barcelona endar í öðru sæti.
Malaga 0 - 2 Real Madrid
0-1 Cristiano Ronaldo (\'2 )
0-2 Karim Benzema (\'55 )

Barcelona 4 - 2 Eibar
0-1 Takashi Inui (\'7 )
0-2 Takashi Inui (\'61 )
1-2 David Junca (\'63 , sjálfsmark)
1-2 Lionel Andres Messi (\'70 , Misnotað víti)
2-2 Luis Suarez (\'73 )
3-2 Lionel Andres Messi (\'75 , víti)
4-2 Lionel Andres Messi (\'90 )
Messi var með tvennu, það var hins vegar ekki nóg.

Messi var með tvennu, það var hins vegar ekki nóg.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.