Brasilíski framherjinn Joao Pedro var á dögunum útnefndur sem besti leikmaður tímabilsins hjá enska stórveldinu Chelsea.
Joao Pedro hefur komið með beinum hætti að 29 mörkum í 49 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu og hefur verið orðaður við félagaskipti í sumar. Barcelona og PSG eru áhugasöm en Chelsea vill ekki selja leikmanninn.
Þetta er í 60. sinn sem leikmaður tímabilsins er valinn hjá Chelsea en á síðustu árum hafa Moisés Caicedo, Cole Palmer og Thiago Silva verið valdir bestir hjá félaginu.
Joao Pedro var vongóður um að vera í brasilíska landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið þrátt fyrir að eiga aðeins 8 A-landsleiki að baki. Búist var við að frábært fyrsta tímabil hjá Chelsea yrði verðlaunað með kalli í landsliðið.
Fjölskylda og ættingar Joao Pedro horfðu saman á beina útsendingu frá tilkynningunni um landsliðsvalið en nafnið hans kom aldrei. Brasilíska fótboltasambandið ákvað að vera með tveggja klukkustunda kynningu á landsliðshópnum í stað þess að halda einfaldan fréttamannafund eins og hefur verið gert áður.
Margir hafa furðað sig á því að Carlo Ancelotti valdi sex kantmenn í landsliðshópinn og að hinn 19 ára gamli Endrick hafi verið valinn framyfir Joao Pedro.
Richarlison, Joelinton, Andrey Santos og Joao Gomes eru meðal brasilískra úrvalsdeildarleikmanna sem voru ekki valdir í lokahópinn.
19.05.2026 08:00
Joao Pedro með yfirlýsingu - Ancelotti sorgmæddur
Joao Pedro is our 25/26 Player of the Season. ???????????? pic.twitter.com/bkCyUyECEq
— Chelsea FC (@ChelseaFC) May 19, 2026
Our brilliant Brazilian. ???????? pic.twitter.com/hN7VjCaRyS
— Chelsea FC (@ChelseaFC) May 19, 2026


