Fotbolti.net
21.06.17 - 14:34
Elvar Geir Magnússon

West Ham lánar Oxford til Gladbach (Staðfest)

Oxford mættur á Borussia-Park.

Oxford mættur á Borussia-Park.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur lánað hinn 18 ára Reece Oxford til Borussia Mönchengladbach í þýsku Bundesligunni í eitt ár.

Slaven Bilic, stjóri West Ham, telur að Oxford sé ekki tilbúinn fyrir aðallið sitt og sendir hann á lán til að hann þróist hraðar.
Oxford hefur ekki náð að festa sig í sesssi síðan hann spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir West Ham aðeins 16 ára gamall gegn Arsenal fyrir næstum tveimur árum.

Bilic telur að þessi ungi varnarmaður þurfi að læra meira varðandi taktík og öðlast meiri reynslu áður en hann sé tilbúinn að spila reglulega með Hömrunum.

Oxford hefur fengið treyju númer þrjú hjá Gladbach.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.