Fotbolti.net
21.06.18 - 17:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pape Mamadou Faye til Færeyja (Staðfest)

Pape Mamadou Faye til Færeyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pape Mamadou Faye spilaði sinn síðasta leik fyrir Víking Ólafsvík í gærkvöld í 2-0 sigri á Þór á Akureyri.

Pape er búinn að semja í Færeyjum við lið TB/FCS/Royn. Hann er búinn að skrifa undir samning út þetta leiktímabil við félagið og segist hann mjög spenntur fyrir því.
Pape er 27 ára gamall sóknarmaður sem kom til Íslands fyrst árið 2003. Hér á landi hefur hann leikið með Fylki, Leikni R., Grindavík , BÍ/Bolungarvík, Víkingi R. og Víkingi Ólafsvík.

Pape spilaði fimm leiki með Ólsurum í Inkasso-deildinni í sumar og skorað eitt mark í þeim.

TB/FCS/Royn er í áttunda sæti færeysku úrvalsdeildarinnar af 10 liðum eftir 14 leiki.

TB/FCS/Royn spilar við Íslendingalið HB á laugardag. Pape gæti þreytt frumraun sína þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.