Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 21. júní 2018 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo útskýrir hökutoppinn - Byrjaði sem grín
Ronaldo skartar þessum hökutoppi.
Ronaldo skartar þessum hökutoppi.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skartaði hökutoppi þegar Portúgal lagði Marokkó að velli á HM í gær.

Portúgal vann 1-0 og skoraði Ronaldo sigurmarkið. Portúgal þarf að forðast tap gegn Íran í lokaleik sínum í riðlinum til þess að tryggja sér farseðil í 16-liða úrslitin.

Það var ekki bara markið hjá Ronaldo sem vakti athygli í gær því hann mætti með skegg í leikinn, nánar tiltekið hökutopp. Ronaldo er ekki þekktur fyrir það að vera með skegg og var því nánar spurður út í það að leik loknum í Rússlandi í gær.

„Skeggið mitt? Þetta byrjaði sem grín á milli mín og Quaresma, við vorum í gufubaði og ég var að raka mig, ég skildi eftir hökutopp og sagði honum að ef ég myndi skora á móti Spáni þá myndi ég ekki raka hann fyrr en eftri mótið," sagði Ronaldo.

Ronaldo skoraði þrennu á móti Spáni.

„Þessu fylgdi heppni. Ég skoraði gegn Spáni og Marokkó." Hökutoppurinn fær að vera eitthvað áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner