Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 15:00
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea opið fyrir því að selja Jackson eftir dýrt rautt spjald
Mynd: EPA
Chelsea er opið fyrir því að selja senegalska framherjann Nicolas Jackson eftir að leikmaðurinn fékk annað dýrt rautt spjald á aðeins tveimur mánuðum er liðið tapaði fyrir Flamengo, 3-1, á HM félagsliða.

Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Juventus og Napoli hafi mikinn áhuga á Jackson.

Chelsea hefur til þess ekki verið opið fyrir því að leyfa Jackson að fara en er nú að íhuga stöðu hans eftir að hann fékk rautt spjald stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður gegn Flamengo.

Enzo Maresca, stjóri Chelsea, er sagður pirraður á agaleysi Jackson sem fékk einnig að líta rauða spjaldið í leik gegn Newcastle fyrir tveimur mánuðum.

Eins og kom fram hér að ofan er Juventus og Napoli að skoða Jackson. Juventus mun losa sig við Dusan Vlahovic og mögulega Randal Kolo Muani sem opnar pláss fyrir Jackson.

Napoli er þá á höttunum eftir nýjum framherja, en Darwin Nunez er sagður efstur á óskalistanum. Ef félaginu tekst ekki að ná samkomulagi við Liverpool mun það fara á eftir Jackson.

Jackson hefur skorað 30 mörk í 80 leikjum sínum með Chelsea frá því hann kom frá Villarreal fyrir tveimur árum.
Athugasemdir
banner
banner