21.07.16 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Frisbie í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Stjarnan hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta tímabils í Pepsi-deild kvenna en Amanda Frisbie hefur samið við félagið.
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Hin 24 ára gamla Frisbie spilaði síðast með Kansas City í úrvalsdeildinni í Bandaríkjunum.
Frisbie er varnarmaður en hún lék á sínum tíma með U23 ára landsliði Bandaríkjanna.
Stjarnan er á toppnum í Pepsi-deild kvenna í augnablikinu en liðið mætir Breiðabliki í undanúrslitum Borgunarbikarsins á morgun.
Frisbie er ekki komin með leikheimild og óvíst er hvort hún nái bikarleiknum gegn Blikum.