Fotbolti.net
21.07.16 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Grant Hanley í Newcastle (Staðfest)

Sáttur með skiptin.

Sáttur með skiptin.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt varnarmanninn Grant Hanley frá Blackburn Rovers á 5,5 milljónir punda.

Hanley er 24 ára gamall en hann er skoskur landsliðsmaður.

Hanley hefur skorað níu mörk í 201 leik með Blackburn síðan hann hóf feril sinn með liðinu þegar hann var 18 ára gamall.
Rafa Benítez, stjóri Newcastle, er á fullu að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil í Championship deildinni en Hanley er sjötti leikmaðurinn sem kemur til félagsins sumar.

Newcastle hefur einnig krækt í þá Matz Sels, Jesus Gamez, Matt Ritchie, Issac Hayden og Dwight Gayle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.