Fotbolti.net
21.07.16 - 13:29
Magnús Már Einarsson

Julian Lopetegui tekur við spænska landsliðinu (Staðfest)

Julian Lopetegui.

Julian Lopetegui.

Canon

Mynd: Getty Images

Julian Lopetegui hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Spánverja en hann tekur við af Vicente del Bosque sem hætti á dögunum eftir eftir átta ára starf.

Lopetegui hefur áður þjálfað spænska U19, U20 og U21 árs landsliðið.

Árið 2014 tók hann við Porto og endaði í öðru sæti á sínu fyrsta tímabili. Hann var rekinn í janúar á þessu ári eftir dapurt gengi.
Hinn 49 ára gamli Lopetegui var markvörður á ferli sínum sem leikmaður en hann var meðal annars á mála hjá Real Madrid og Barcelona.

Spánverjar töpuðu fyrir Ítalíu í 16-liða úrslitum í EM í ár og duttu út í riðlakeppni HM í Brasilíu 2014 eftir að hafa áður unnið stórmót árin 2008, 2010 og 2012.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.