Fotbolti.net
21.07.16 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Mario Götze til Dortmund (Staðfest)

Mario Götze til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Borussia Dortmund hefur keypt Mario Götze aftur í sínar raðir frá FC Bayern. Kaupverðið er talið vera 22 milljónir evra eða um 18,3 milljónir punda.

Hinn 24 ára gamli Götze spilaði einungis 14 leiki með Bayern á síðasta tímabili.

Götze, sem skoraði sigurmarkið á HM 2014, fór frá Dortmund til Bayern árið 2013.
Stuðningsmenn Dortmund voru ekki ánægðir með Götze þá en hann er nú kominn aftur til félagsins og ætlar að sanna sig upp á nýtt.

„Ég vil reyna að sannfæara alla með frammistöðu minni, sérstaklega þá stuðningsmenn sem taka mér ekki opnum örmum núna,\" sagði Götze.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.