21.07.16 - 16:45
Elvar Geir Magnússon
Pjaca til Juventus (Staðfest)

Pjaca er orðinn leikmaður Juventus.

Mynd: Getty Images

Pjaca er orðinn leikmaður Juventus.

Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Juventus hafa keypt Marko Pjaca frá Dinamo Zagreb í Krótíu á 23 milljónir evra. Pjaca spilaði með króatíska landsliðinu á EM í Frakklandi.
Pjaca á framtíðina fyrir sér, er 21 árs, og skrifaði undir fimm ára samning við Juve. Öll stórliðin á Ítalíu höfðu áhuga á honum.
Pjaca á framtíðina fyrir sér, er 21 árs, og skrifaði undir fimm ára samning við Juve. Öll stórliðin á Ítalíu höfðu áhuga á honum.
Hann spilaði sinn síðasta leik fyrir Dinamo í gær gegn Vardar í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Það hefur verið mikið unnið á skrifstofu Juventus í sumar. Félagið hefur fengið til sín Miralem Pjanic, Medhi Benatia og Dani Alves.
Það hefur verið mikið unnið á skrifstofu Juventus í sumar. Félagið hefur fengið til sín Miralem Pjanic, Medhi Benatia og Dani Alves.
