Fotbolti.net
21.07.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Þór/KA fær bandarískan miðjumann (Staðfest)

Þór/KA fær liðsstyrk.

Þór/KA fær liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta sumars í Pepsi-deild kvenna en bandaríski miðjumaðurinn Zaneta Wyne er komin til félagsins.
Zaneta er 25 ára gömul en hún spilaði síðast með Apollon á Kýpur.

Hún var meðal annars í liði Apollon sem tapaði 2-0 gegn Stjörnunni í Meistaradeildinni í fyrra.

Þór/KA hefur unnið þrjá leiki í röð í Pepsi-deild kvenna og er í 4. sætinu, fimm stigum frá toppnum.

Liðið mætir ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins á laugardag en Zaneta er komin með leikheimild og getur spilað þann leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.