Fotbolti.net
21.07.17 - 16:20
Magnús Már Einarsson

Keflavík fær danskan kantmann (Staðfest)

Keflavík fær danskan kantmann (Staðfest)
Canon

Mynd: Keflavík

Keflavík hefur fengið danska kantmanninn Lasse Rise til liðs við sig frá Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni.
Lasse er 31 árs og var í unglingaliði Bröndby áður en hann fór yfir til BK Avarta.

Síðan þá hefur hann spilað með félögum eins og Lyngby BK, Randers FC og Esbjerg FB.

„Keflavík fagnar komu hans og er honum ætlað það hlutverk að styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er í því að komast upp í Pepsi-deild,\" segir á heimasíðu Keflavíkur.

Keflavík er í 2. sæti í Inkasso-deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Leikni Fáskrúðsfirði á morgun.

Not the best Dane in town anymore 😅

— Jeppe Hansen (@Jeppe29) July 21, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.