Fotbolti.net
21.07.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Kurt Zouma til Stoke á láni (Staðfest)

Framlengdi við Chelsea

Kurt Zouma til Stoke á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur fengið varnarmanninn Kurt Zouma í sínar raðir á láni frá Chelsea.

Hinn 22 ára gamli Zouma skrifaði undir nýjan sex ára samning við Chelsea áður en hann skellti sér yfir til Stoke.

Zouma meiddist illa á hné í febrúar 2016 og var frá keppni í langan tíma í kjölfarið.

Hann sneri aftur á síðasta tímabili og spilaði þrettán leiki þegar Chelsea varð enskur meistari.
Chelsea vill að hann spili meira á komandi tímabili og því er hann farinn til Stoke á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.