Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 21. júlí 2019 22:30
Arnar Helgi Magnússon
Brighton lánar Knockaert til Fulham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur lánað Anthony Knockaert til Championship-liðsins Fulham.

Knockaert spilaði 30 leiki fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en skoraði einungis tvö mörk í þeim.

Hann hefur verið hjá liðinu síðan árið 2016 en hann kom þá frá Standard Liege.

„Markmiðið er að koma Fulham aftur í deild þeirra bestu þar sem að félagið á heima," segir Knockaert.

„Ég kem hingað með skýr markmið og ég ætla að gera það sem ég get til þess að hjálpa liðinu beinustu leið upp aftur."


Athugasemdir
banner
banner
banner