Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 21. júlí 2019 10:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lys Mousset til Sheffield United fyrir metfé (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sheffield United er búið að ganga frá kaupum á Lys Mousset frá Bournemouth. Hann kemur fyrir metfé, en talið er að hann kosti um 10 milljónir punda.

Mousset er 23 ára gamall framherj en hann ólst upp hjá Le Havre í Frakklandi áður en hann samdi við Bournemouth fyrir þremur árum.

Hann lék 68 leiki og skoraði 5 mörk fyrir Bournemouth en er nú að skipta um félag í úrvalsdeildinni.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við Sheffield United og er fimmti leikmaðurinn sem nýliðarnir fá í sumar. Phil Jagielka, Ravel Morrison, Callum Robinson og Luke Freeman höfðu áður skrifað undir hjá Sheffield United.



Athugasemdir
banner
banner
banner