Fotbolti.net
21.07.26 - 14:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aston Villa leggur fram tilboð í Garnacho

Aston Villa leggur fram tilboð í Garnacho
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur samkvæmt heimildum Fabrizio Romano lagt fram formlegt tilboð í Alejandro Garnacho sem er leikmaður Chelsea.

Romano segir að rætt sé um þann möguleika að Garnacho færi á láni til Aston Villa og að í samningnum yrði kaupmöguleiki.

Aston Villa er á leiðinni í Meistaradeildina í vetur og ætlar að auka við breiddina í hópnum fyrir komandi átök.
Argentínski kantmaðurinn var keyptur til Chelsea frá Manchester United síðasta sumar fyrir um 40 milljónir punda.

Hann er 22 ára og skoraði átta mörk í 43 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.