Evrópumeistararnir hætta við Bouaddi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Evrópumeistararnir í PSG hafa dregið sig úr kapphlaupinu um Ayyoub Bouaddi, leikmann Lille og marokkóska landsliðsins.
Miðjumaðurinn heillaði á HM og fylgjast stærstu félög Evrópu náið með honum. Manchester City, Real Madrid, Bayern, Arsenal og Barcelona hafa öll verið orðuð við kappann.
L'Equipe segir að PSG muni ekki reyna við Bouaddi í sumar og í raun engan miðjumann. Luis Enrique, stjóri PSG, vill að það sé leið inn í liðið fyrir leikmenn sem þegar eru á mála hjá félaginu.

Bouaddi er 18 ára og spilar með Hákoni Arnar Haraldssyni hjá Lille. Hann var í byrjunarliði Marokkó í öllum leikjunum á HM nema gegn Haítí í lokaleik riðlakeppninnar. Marokkó tapaði gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum.