Stjarnan kaupir Christian Bjarma af Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur keypt Christian Bjarma Alexandersson af Grindavík, félagaskiptin eru gengin í gegn.
Uppfært 14:54: Stjarnan hefur kynnt Christian sem nýjan leikmann félagsins. Á vef KSÍ segir að hann skrifi undir samning sem gildir út tímabilið 2029.
Christian er fæddur 2007 og á að baki einn U19 landsleik. Hann er vinstri bakvörður sem hefur einu sinni verið í liði umferðarinnar í sumar.

Stjarnan var orðuð við annan vinstri bakvörð, Johannes Vall hjá ÍA, í síðustu viku en nú er Christian kominn til félagsins.
Hann hefur spilað þrettán leiki í deild og bikar í sumar og hefur lagt upp eitt mark.
Í vetur var sagt frá því að það væri áhugi úr Bestu deildinni á Christian og þá var ÍBV nefnt sem félag sem hafði áhuga á honum.
Næsti leikur Stjörnunnar er heimaleikur gegn finnska liðinu Ilves á fimmtudagskvöld og svo er útileikur gegn ÍA í Bestu deildinni á sunnudag.