Fotbolti.net
21.07.26 - 10:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík reynir að kaupa Alpha Conteh

Keflavík reynir að kaupa Alpha Conteh
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Keflavík er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að reyna ganga frá kaupum á kantmanninum Alpha Conteh frá Stjörnunni.

Alpha er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni og hefur spilað vel á tímabilinu.

Hann er 26 ára kantmaður frá Síerrea Leóne sem samdi við Stjörnuna síðasta sumar eftir að hafa spilað með Neftci Baku í Aserbaísjan. Hann á að baki fimm landsleiki.
Í níu leikjum með Keflavík hefur Alpha skorað tvö mörk og lagt upp þrjú. Hann lagði upp annað mark Keflavíkur í sigrinum gegn ÍA í gær.

Alpha er mjög ofarlega á lista yfir leikmenn sem hafa tekið andstæðinginn oftast í deildinni og þá leikmenn sem oftast er brotið á í deildinni.

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.