Fotbolti.net
21.07.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Búast við öðru stóru tilboði frá Arsenal

Búast við öðru stóru tilboði frá Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Breski fjölmiðillinn talkSPORT greinir frá því að Arsenal ætli sér að reyna aftur við Bruno Guimaraes sem er fyrirliði Newcastle.

Englandsmeistararnir eru sagðir ætla að bjóða aftur í brasilíska landsliðsmanninn, en Newcastle hefur tekið fyrir það að formlegar viðræður hafi átt sér stað milli félaganna til þessa.

Fjallað hefur verið um að fyrsta tilboð Arsenal hafi hljóðað upp á 65 milljónir punda og Newcastle hafnaði því.
Newcastle hefur sett100 milljóna punda verðmiða á Bruno og segir að hann sé ekki til sölu.

Arsenal er sagt ætla að bjóða meira en 70 milljónir punda í þessari næstu tilraun sinni til að landa leikmanninum. Þá er sagt að drög að samningi við samningi við Arsenal hafi verið samþykkt af Bruno og hans teymi.

Annað enskt félag hefur sent fyrirspurn á Newcastle vegna Bruno Guimaraes sem er 28 ára og hefur verið hjá Newcastle frá 2022 en þá kom hann frá Lyon.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.